--jrblogg--
Skatevideo
MySpace
07.02.2008 17:46:01 / bjorundur

Selva, Italiu

Akvad ad senda linu hedan fra Selva. Skidafaerid er natturulega otrulegt og brekkurnar rosalegar. I dag for eg med Omari nidur 10 km langa brekku an tess ad stoppa og tad var snilld. Vid vorum um 7 min ad fara nidur brekkuna sem er toluvert styttri timi en tekur ad keyra fra breidholti nidur i bae. A morgun stendur til ad fara med tyrlu upp a 3000 m haan jokul og renna ser nidur ef vedur leyfir. Vid eigum ekki von a odru tar sem vedrir her er alltaf gott. Bara misgott. Her hreyfir aldrei vind og hitastigid alltaf rett undir nullinu.

Eg er buinn ad vera mjog duglegur a myndavelinni og set eg helstu myndir og video inn a vefinn tegar vid komum heim.

Jori


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 00:28:10 / bjorundur

2008, jibbí

Sælir kæru lesendur.

 Ég vil byrja á að óska ykkur gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það gamla. Síðasta ár var tær snilld hér á Ránargötunni. Bæði erum við hjónin útskrifuð úr okkar námi og bara allt gott um það að segja. Frekara nám er hugsanlegt næsta haust, en það kemur bara í ljós með tíð og tíma.

 Það er orðið ansi langt síðan ég setti eitthvað hérna inn síðast, þó það ekki vegna vegna ládeyðu í lífi mínu heldur krónískur tímaskortur og leti þess á milli.

2008 er að byrja jafnvel og 2007 endaði. Kallinn búinn að versla sér mótorhjól og er vægast sagt himinlifandi. Það var 2003 árgerð af KTM 450 EXC sem varð fyrir valinu og tel ég mig bara hafa gert kostakaup. Kaupverð verður ekki gefið upp að svo stöddu. Þó læðist að mér grunur að hjólið sé í raun dýrara en heimilisbíllinn en við förum ekkert nánar út í það. Tíðarfar og tímaleysi hefur aftrað mér frá að þreyta veljólaprófið hingað til en þegar en með hækkandi sól tek ég það og fer að þeysast um allar trissur á fáknum. Vá hvað ég hlakka rosalega mikið till. Þangað til verð ég að láta mér nægja að að þrífa og bóna gripinn og gera við ýmsa hluti fyrir sumarið. Félagar mínir í vélhjólaklúbb CSC  eru sem betur fer klárari en ég í smurmálum og veita þeir dygga aðstoð í viðhaldi á tækinu. Ég fylgist að sjálfsögðu með af athygli og vonast til að verða orðinn sæmilega fær á skiptilykilinn eftir nokkra mánuði.

 Vélhjólaklúbbur CSC er semsagt  að komast á fullt skrið og er spennan aldeilis farin að vaxa. Við félagarnir vorum að klára að smíða okkur 3ja hjóla kerru og heppnaðist hún með eindæmum vel, þó ég segi sjálfur frá. Áhugasamir geta skoðað gripinn og líka hjólið á MysSpace síðunni minni www.myspace.com/jrblondal .

 Þangað til næst, Jörundur Ragnar Blöndal, nýbakaður húsasmiður


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 00:40:16 / bjorundur

Kvikmyndagagnrýni; Death Proof

Leiðinlegasta mynd sem ég hef séð!

Jöri


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 00:49:38 / bjorundur

Bíóferð

Fór í bíó áðan að sjá Sunshine. Til að gera langa sögu stutta átti ég von á að þetta væri góð mynd af fyrri verkum leikstjóra að dæma, 28 days later og Trainspotting. En nei. Þetta er ömurulegt, sora, helvítis, handónýtt rusl sem ég eyddi 900 krónum í að fá að sjá á stóru tjaldi. Mér er svosem nokk sama um peninginn en tímann sem það tók að meðtaka þessa þvælu fæ ég aldrei bættan. Til fjandans með þig Hr.Leikstjóri, hvað sem þú heitir. Finndu þér eitthvað annað að gera.

Jöri


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 22:49:43 / bjorundur

Bílanöldur

Bílar eru alltaf að fara meira meira í taugarnar á mér. Hafið þið þið keyrt um bílasölurnar nýlega? Það er þyngra en tárum tekur. Svoleiðis glæsibifreiðar sem liggja þarna mánuðum saman eins og hráviði og markaðurinn löngu mettaður. Það eru til mun fleiri bílar á Íslandi en ökuskírteini. Ég er ekki með tölur á kristaltæru en það eru örugglega til 2 ökutæki á hvert bílpróf á Íslandi í dag. Allt of mikið. Ég legg til að innflutningur á öllum bílum verði bannaður nema á hybrid bílum í 5 - 8 ár. Nota bílana sem til eru. Þetta er fáránlegt. Að sjá þessi verðmæti sem enginn notar og fólk enn að borga af þeim.

Einnig er það alltaf að fara meira og meira í taugarnar á mér að sjá fólk keyra eins og fífl. Gefandi allt í botn til þess eins að geta beðið lengur í kyrrstöðu á rauðu ljósi. Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því að með þessu eyðast bremsuborðar fyrr, vélin slitnar meira og bensínreikningurinn er miklu hærri en hann þyrfti að vera.

Vissuð þið það t.d. að 5. gírinn er gersamlega með öllu óþarfur í innanbæjarakstri. Ef þú ert að keyra innan borgarmarkanna í 5. gír ertu annaðhvort að

a: Brjóta löginn með því að vera kominn yfir löglegan hámarkshraða

eða

b: Keyra bílinn of hægt miðað við gír og með því  fara illa með vélina og eyða langtum meira bensíni en þú þarft í ferðina.

Ég er sjálfur farinn að æfa mig í sparakstri dags daglega og það er hreinlega gaman að reyna að komast alltaf fleiri km á hverjum fullum tánk af bensíni. Ég fer aldrei í 5. gír innanbæjar og sjaldan í 4. gír. Það er svona spari þar sem má keyra á 80 sem er þó sumsstaðar. Og hvað hefur það haft í för með sér kann einhver að spyrja. 

Jú, ég er ekki eins stressaður í umferðinni, það tekur einfaldlega tíma að koma sér á milli staða og götur borgarinnar eru ekki staðurinn til að vinna upp tíma.

Bíllinn er farinn úr því að eyða um 11 lítrum á hundraði niður í 7,5 til 8. Fínn sparnaður og minni útblástur.

Með þessum breytingum er ég farinn stjórna vélinni eins og hún er hönnuð til sem þýðir að hún á að endast lengur.

Og ég fer aldrei yfir löglegan hámarkshraða og hef því engar áhyggjur af laganna vörðum.

Ég legg að fólk sem keyrir eins og bjánar ( þið vitið hver þið eruð ) slaki fætinum aðeins af bensínígjöfinni og fari að spara peninga og bensín. Það er ekkert töff við það að keyra hratt á götum borgarinnar. Það er bara hlegið að ykkur þegar þið brunið fram hjá.

Jörundur Ragnar 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 11:22:05 / bjorundur

Forsíða Blaðsins 27-01-07

Mér varð flökurt þegar ég sá framan á Blaðið í dag. Geri mig bara enn ákveðnari ef eitthvað er að sjá þennan mann skríða fyrir samúð. Að sjá hann horfa dreyminn upp í himininn og ræða um fyrirgefningu guðs. Have you no shame, Árni! Vibjóður segi ég Jöurundur

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 08:57:16 / bjorundur

Vertu sæll að sinni Sjálfstæðisflokkur.

Já, það fór eins og á horfðist. Árni Johnsen kominn í framboð til Alþingis innan raða Sjálfstæðislokksins. Ég er eiginlega ekkert hissa. Átti fullkomlega von á þessu. Það er vitað mál Árni þekkir ekki muninn á réttu og röngu, það er búið að dæma hann fyrir það áður, og átti ég því ekki von á að hann myndi draga sig í hlé af sjálfsdáðum. En það var fullt af fólki sem hafði kost á því að gera hið eina rétta í stöðunni og grýta honum út af lista en kaus að gera það ekki. Á því er ég hissa. Greinilegt að siðblindir eru í meirihluta á þessum slóðum og er það eðlilega áhyggjuefni.

Ég stend að sjálsögðu við gefin loforð og mun ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn meðan þessi maður er innanborðs. Það er enn tími fyrir hann að víkja úr sæti en ég ætla ekki að vera ergja mig mig á þessu lengur.

Vertu sæll að sinni Sjálfstæðisflokkur.

Jörundur Ragnar Blöndal


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 19:27:19 / bjorundur

Hvað er að?

Af hverju er tónlist undir veðurfréttatímanum á Stöð2? Hvaða fífli datt það í hug? Þetta er bara asnalegt og pirrandi!

Jöri


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 14:44:12 / bjorundur

Nýárskveðja

Gleðilegt ár öllsömul. Takk fyrir þau gömlu.

 Jörundur


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 01:09:27 / bjorundur

Orðinn 26 ára gamall

Snilldar afmælisdagur að kveldi kominn. Hefði ekki geta farið betur. Var að vinna í dag með Steina í húsinu hans Gunna. Það var ofboðslega gaman. Steini bauð mér í hádegismat í tilefni dagsins, snilld. Þessi fíni beikon ostborgari, takk Steini. Hætti að vinna 17:00. Sandra Sæta kláraði sitt síðasta próf í dag og taldi að afraksturinn yrði góður. Óska henni til hamingju með að vera búin með prófin og mér til hamingju með að vera búinn að endurheimta konuna mína. Eftir snögga sturtu dreif ég mig í skólann að sækja einkunirnar mínar =

 

 



Framkvæmdir og vinnuvernd: 8

Áætlanagerð og gæðastjórnun: 9

Iðnteikning: 9

Efnisfræði byggingamanna: 10

 

 



Kallinn vel sáttur. Ein tían enn í sarpinn. Ójé!

 

 



Svo var förinni heitið til Stokkseyrar, nánar tiltekið Við Fjöruborðið,þar sem humarinn beið okkar hvítlaukssmjörsteiktur í tonnatali. Meiriháttar góður. Fær toppeinkun. Með í för voru; amma, afi, mamma, pabbi, Ingunn Margrét , Kristinn Gunnar, Lilja, Sif, Arna, Silla, Ómar, ég sjálfur og síðast en ekki síst uppáhalds eginkonan mín, Sandra.

Ég vissi nú ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar gjöfunum  tók að rigna yfir mig. Ég fékk íslenskar krónur, Kraftwerk Minimum Maximum Collectors edition DVD CD box set ( Sandra outdid herself on that one, HELL YEAH!!!), geðveika peysu sem ég hef haft augastað á í allnokkurn tíma og Airport express ( nú losnar Sandra við eina snúruna enn sem gleður hana afar mikið). Allar hittu gjafirnar beint í mark og kann ég fjölskyldu minni bestu þakkir fyrir. Frábært kvöld sem verður vonandi endurtekið næst þegar einhver nákominn á afmæli eða ætlar að fagna einhverju.

 

 



Takk fyrir mig;

 

 



Gamli


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 00:28:25 / bjorundur

Prófin búin og jólin framundan. Gæti það verið betra? Nei!

Búinn í prófunum, újé. Loksins get ég farið að vinna aftur eins og maður og er búinn að eignast kvöldin mín aftur út af fyrir mig. Get samt ekki verið að kvarta mikið. Þetta var nú ekki mikil törn miðað við konuna mína og hennar fólki. Hjá þeim er sko skólinn vinna. Tók einmitt þá frábæru ákvörðun að fara að læra með þessum snillingum uppi í Hálskóla Íslands, Odda nánar tiltekið, í stað þess að horfa á sjónvarpið heima og þykjast vera að lesa. Ég á þeim mikið að þakka því Sæta, Fríður og Stígur voru dugleg að halda mér við efnið og binda mig aftur í stólinn þegar ég vildi fara út að ráfa. Fyrirtaksfólk, segi ég. Takk.

 Þegar allar einkunnir eru komnar í hús kem ég nú sennilega til með að grobba mig af þeim og birta á netinu því þetta eru að sögn tómar áttur og níur, en þið verðið að bíða spennt fram á afmælisdaginn minn, 18 des, til að fá lokatölur. Sandra er búinn prófunu 18 des. og þá hefst gamanið fyrir alvöru. Þangað til er það trommusettið og þvottavélin sem verða mínir bestu vinir ásamt því að til stendur að fara heim til vina og kunningja og dytta að smáverkum svo allt verði í standi um jólin.

 Þangað til næst

 Jörundur Ragnar Blöndal, smíðanemi


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 08:07:37 / bjorundur

Nöldur

Týpiskt Ísland. Snjóar bönns, allir fastir, ég moka eins og vitleysingur og fyrr en varir er allt bráðnað burt. Hvernig væri að fara að ákveða sig! Sumar eða vetur? Þessar semi tíðir eru ekkert skemmtilegar. Hálfkalt, samt ekkert kalt en ekki hlýtt. Bögg!

 Sá búð fyrir fólk sem vill kveikja í peningunum sínum um daginn.Heitir Saltfélagið held ég og er þar sem Ellingsen var niðri á Granda. Búðin ætti eginlega að “Ef þú verslar hérna ertu bjáni og við skellihlæjum alla leið í bankann.” Þarna var ósköp venjulegur tveggja sæta leðursófi á 400000, ljótir stólar á 50000 kall stykkið, örsmátt borð (kanski 30*30*30) sem passar hvergi á 30000 osfrv. Fyndið með þessar fancy dellu búðir sem spretta upp eins og gorkúlur. Alltaf verið að sýna frá þessu rugli í Innlit Útlit. Ekki myndi ég vilja búa á svona heimili. Þar sem allt er svo fínt og dýrt að það er ekki lengur pláss fyrir fólk. Bara staður til að taka myndir af og sýna í Veggfóðri og láta venjulegt fólk furða sig á því hvernig nokkur maður getur búið á svo sótthreinsuðum og fullkomlega stíliseruðum heimilum. Fyndið.

Jörundur


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 04:53:10 / bjorundur

Vá!!!!!

LET IT SNOW, LET IT SNOW, LET IT SNOW!


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 16:17:35 / bjorundur

Dónaskapur

Hringdi í Sjálfstæðisflokkinn áðan og tjáði þeim sem mér svaraði að ég myndi ekki ljá flokknum atkvæði mitt í næstu þingkosningum. Af hverju kannt þú að spyrja. Árni Johnsen. Þess vegna. Hann ætlar að reyna að smokra sér aftur á hið háa Alþingi Íslendinga eftir allt sem á undan er gengið og því get ég ekki kyngt. Maðurinn stal frá okkur og reyndi svo að ljúga um það upp í opið geðið á okkur í sjónvarpinu. Þannig maður hefur ekkert að gera aftur inn á Alþingi. Það er nóg af örðum lausum störfum úti í þjóðfélaginu sem hann getur sinnt. Að hann ætli sér aftur inn á Alþingi er dónaskapur í minn garð og þinn.

 Þó að það komi kanski ekki beint við Árna heldur Guðlaug Þór, að ég kjósi ekki D, því Árni er ekki í mínu kjördæmi þá verða flokksmenn Árna að bíta í það súra epli að flokkurinn í heild sinni hefur tapað trúverðugleika sínum út á þennan mann og ég skila auðu á kjördag. Árni á að draga sig í hlé og skammast sín fyrir að láta það eftir sér að reyna þetta. Og hananú!

 Jörundur Ragnar Haraldsson Blöndal


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 16:15:44 / bjorundur

Ökuníðingar

Djöfull sá ég var skemmtilega frétt á Rúv um daginn . Þar var formaður tryggingafélgs að tjá vilja sinn á að Lögreglan léti af hendi upplýsingar um ökuníðinga. Þeir hinir sömu myndu síðan borga allt að helmingi hærri iðgjöld eða jafnvel vera neitað um tryggingar. Segjum að lögreglan nái þér á 150 kmh. og yfir þá fær tryggingafélagið þitt að vita það. Ef það er búið að taka þig fyrir of hraðan akstur oftar en 5 sinnum á tveggja ára tímabili þá fær tryggingafélagið þitt að vita það. Svo er það bara þitt að reyna að semja við þá. Haha. Hversu mikil snilld er þetta. Hættu að keyra of hratt. Það er BANNAÐ! Hljómar reyndar hættulega. Að afhenda tryggingarfélögum upplýsingar um almenna borgara. Það myndi eðlilega enda með ósköpum ef tryggingafélög kæmust til dæmis yfir sjúkraskrár fólks. En þetta má. Það yrði bara að setja eðlileg mörk. Ég styð þetta með fyrirvara þó um að rétt verði staðið að þessu. Eitthvað þarf að gera til að stemma stigu við þeirri hættu sem steðjar að saklausu fólki á gatnakerfi Íslendinga. Það eru allt of margir fávitar með bílpróf sem hafa ekkert með það að gera.

Jörundur


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4